~Let's get naked !;)

Hah..fíFl...vúúúúvh :D

11.05.2008 16:30:45 / Melkorka

Helló?

í dag er 11. maí, á morgun er 12.mai.
Inga er farinn í bæinn og er að fara til Tælands.
Anna Þóra er að vinna.
Arnleif er í Klængseli.
Vala ætti að vera að læra?
Þóra er búin í prófum.
Ég sjálf ætti að vera að læra. kann einhver tölfræði?
Þetta er samt allt að hafast , prófin alveg að verða búin og sumarið að skella á. Ég hef góða tilfinnigu fyrir sumrinu. Hef trú á því að þetta verði gott sumar.
Ég og Valgerður erum að farað vinna í Nátthaga og mér lýst barasta vel á það. Vera úti og njóta þess í sumar.
Á þriðjudaginn er þetta blessaða próf sem ég er búin að kvíða fyrir fráþví að ég byrjaði þessa önn. Ég held að ég læri gömlu prófin bara utan að , hvaða aðferð á að nota hvenær og taki þetta svo bara með allavega 4,5. nenni ekki að ná þessu ekki.
Á miðvikudaginn er síðasta prófið sem er náttúrufræði próf sem ég missti af, og þá segi ég skilið við skólan og fagna grasinu sigri hrósandi.
klárlega að fíla það.
Allavega þá ætlaðí ég bara að prófa og vona að ég heyri í sem flestum.
-ást Melkorka

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 23:50:20 / Inga

Páskaar


Hey girls..Hey boys...Superstar Dj´S HERE WE GOOO

Páskafrííd ad verda búid...boring! Samt búid ad vera mjög mjög gaman...fullt af böllum og skemmtilegheitum, teitum...heitum teitum!:)
Byrjad var á Pallaballi sem var trusugott...allar vel fullar og vitlausar , nema Melk og Anna Tóra...tær voru ad keyra:) Smá drama...en hvad gerir smá drama til!
Svo fór helgin bara í tjill og á tridjudeginum fór hún Melkorka nordur og skildi okkur eftir med tad hlutverk ad mála bæinn raudann....sem vid gerdum muha!
Ballid á midvikudeginum var einn sleikur...feitur sleikur...;) Skipst var á og mikid dansad! Jibbí...ég var ad keyra sem var bara mjög fínt fínt...fékk ad sjá allt fulla fólkid vera fyndid og leidinlegt...og enn aftur smá drama ..haha sem var fyndid=) Svo daginn eftir vorum vid tunnar saman og svo skelltum ég og Tóra okkur á Árshátid á Geysi tar sem vid komum á stadinn med pomp og prakt..HAHA! Tar var óvedur en vid gátum kúrad saman í kofanum okkar sem var mjög kósy...Helgin tá var bara rúntur og tjilll , kíktum í busapartý sem var spees allir frekar ölvadir og Bryndís dúlla sá um söng og ryksugudansa;)
Enn og aftur kom ball sem enginn af okkur reyndar fór á ...en ég og VAla skemmtum okkur med tví ad keyra fyllibytturnar...vá vid elskum fyllibyttur.

HEY VO Dexter ad byrja...need to go...

Elska ykkur...einhver svæsinn koma svo med slúdrid til okkkar beint í æd

XxX
Ykkar Inga


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 18:39:48 / Melkorka

oo

ohh.. ég er gjörsamlega að verða geðbiluð. það er of mikið að gera en samt geri ég ekki neitt. mig vantar úrdrátt úr 16. kafla í chica del tren. já takk.
hvað er að Sigursveini að halda bara að ég skiji þetta bara?
einnig á stóran hlut í þessari komandi geðbilun minni draumarnir sem mig dreymir. aðalega þessi þegar ég er að detta í gegnum loftið og lendi í sjónum og bara dett og dett.. freeekar vont. 

heiti gaurinn af litlu kaffistofuni og ég vorum að hætta saman. ég var ekki alveg að meika þetta. hann var að játa ást sína á mér í gríð og erg og vildi helst ekki gera neitt annað en að liggja með mér uppi í rúmi allan daginn, kannski það sé aðalástæðan fyrir því að ég komi engu í verk. sambandslitin voru erfið og tóku á . hann er að keyra í burtu í þessum töluðu orðum . en þetta var okkur öllum fyrir bestu.

ég veit ekki hvað ég geri núna . en þið?
ást
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 16:03:22 / Kjellur

Hell yea

Góðann daginn. Ég sit hérna í þynnku minni og er að láta mér leiðast. Eða jafnvel er ég bara að deyja. Mér líður eins og skít. Þótt ég viti í rauninni ekkert hvernig skít líður, örugglega mjög illa.

En já við skelltum okkur í borg óttans í gærdag og borðuðum þvílíkt góðan kjúkling heima hjá Valgerði a la Nína Edda (auðvitað kom ValgerðurRutta ekkert nálægt því haha). Svo fórum við nú að hella í okkur því ekki ætluðum við edrú á Sander Van Doorn í mínipilsunum okkar. Kvöldið endaði nú ekki betur en það að það var kúrað heima hjá ónefndu fólki skylt Ingu Margréti.

En stelpur ég vil þakka ykkur fyrir frábæra helgi (og já þér líka heiti gaur í köflóttu skyrtunni, man því miður ekki hvað þú heitir. En það hlýtur að koma elskan ;* p.s Call me ef þú sérð þetta)

Takk fyrir túkall.
Anna Þóra


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 19:17:56 / Kjellur

Jæja elskurnar mínar!

Jæja loksins blogga ég, ég hef farið langan veg til að komast aftur í þessa síðu og þurfti ég að ganga í gegnum strangt og langt þjálfunarferli til þess að fá að blogga hér fyrir þessar yndisfríðu meyjar. Ég get nú ekki annað en sagt TAKK stelpur fyrir að taka við mér aftur og ég vona að ég hafi hlustað nógu vel á ykkur þegar þið voruð að þjálfa mig í bloggheimnum.

En annað vil ég nú tala um. Á laugardaginn ætlum við að halda í borg óttans. Sander Van Doorn hefur heillað okkur á einhvern hátt og finnst mér ég vera hátt uppi. Ég held að þetta verði rosalegt fjör hjá okkur. Er ekki mini-pils og hlýrabolur málið? Mér var allavena einhvers staðar sagt það. Ég er búin að kaupa latex galla, en hann verður víst bara að geymast til betri tíma.

Þóra Margrét og Valgerður Rut eiga afmæli á fimmtudaginn og verða þær 19 ára gamlar. Ekki get ég sagt að mér finnist það spennandi aldur en jæja maður verður samt sem áður að eldast til þess að geta orðið stór og sterkur. Væri ekkert gaman ef maður stæði bara í stað og væri kannski alltaf 15 ára. Ha ha, pæliði í því ef þið mynduð lenda í því. Aðeins verra. Ein fyrir utan ball "Hey ég á að vera löngu orðin 18 ára, bara hef staðið í stað í 3 ár".
Ég skil ekkert af hverju ég er að blogga hérna en jæja. Ég bara varð að láta ljós mitt skína, því ég er stjarna og mun alltaf verða. Ekki gleyma mér krakkar því ég er ekta!

Anna Þóra kveður með bros á vör yfir því að vera komin aftur.
Ég elska ykkur aðdáendur okkar.





» 7 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 10:25:59 / Inga

Búhúúú

ÞAÐ VILL ENGINN BLOGGA!!!!:(:( 

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 17:27:50 / Melkorka

Litlujól

Stelpuuur!

jájájá. prófin eru að verða búin og við þurfun að fara að plana jólahittingin okkar. Hvar, hvenær hentar okkur öllum?

ogogog við þurfum að draga okkur jólagjafa fórnalamb. og það á að vera leeeyndó : ) jeii

okei? ...hvad så?


» 26 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 20:40:20 / Melkorka

!!!

ohh ... þið SÖKKIÐ !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 19:03:55 / Melkorka

dæríræ

hei hó ...

þetta er bara ég , ég hún Melkorka. ég var bara eitthvað að dandalast þegar alltíeinu ég fékk þá flugu í hausin að ég ætti að gera eitthvað ýkt skapandi.. föndra eða eitthvað, en þá bara hei! ég skrifa bara . Þetta er nú samt einskonar föndur að púsla í svona blogg, sérstaklega þegar þú hefur ekki frá neinu merkilegu að segja. Man ekkert hvað ég er búin að vera að gera. Jú hvað er ég að plata , við fórum í bústað! þetta var ævintýraferð, það varð sko rafmagnslaust og við sátum í myrkrinu með enginn kerti og ekkert að gera nema að bulla í hvort öðru. een það þjappaði nú okkur bara saman og við fórum bara ölla að kúra í hrúgu og erum nú óaðskiljanleg.... eða svona nánast.

jú og ef ég fer lengar aftur sem ég man ekki hvenær var, þá fórum við , aðalbörnin ég, Inga og Vala og Annaþóra á Hallóvínball. Við  erum nú ekki komnar með þann þroska að geta látið slíkanviðburð framhjáokkur fara. Enda vorumvið líka svona skemmtilegar á þessu balli, það var alveg merkilegt. Við vorum líka mestu pæjurnar oog unnum flottasta búningin. allavega næstum því : ) allavega sætasta búningin! það er svosem ekkert skrítið , erum bara svona að eðlisfari : )

ohh fokk ég er búin að reyna en það virkar EKKI . ég ætlaði að segja ykkur frábæra gleðifrétt en það þurkast alltaf út , þannig að þið verðið bara að gíska!

Lots of love Melkorka - eða var það Diljá?

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 17:29:21 / Inga

Hellló?

HÆ!

ÞETTA ER INGA !!!

HVAÐ ER AÐ FRETTA????

UPS CAPS LOCK

Hehe djóóók:)
Eruði ekki hresssar???=)

I am..eg r buin að skoða gömul FYNDINN blogg frá okkur síðan í fyrra...ahhh SHITT hvað maður gat verið fyndinn...hehehehehehehehehehehehehehehehehe!

Annars bara bloggg sko....vil ekki að þessi síða deyji, i want to live...=)

1. Er þetta ball að beilast eða?? hvað er það....? það kostar milljon á það


2. Er einhver að skipuleggja bústaðinn í vetrarfríiinu?


3. Eigum við eitthvað að fara að uppfæra þessu síðu...henda eins og kannski myndum inn???


4. Hvernig gengur svo með "the novel" that novel you´re making:D hahaha
Já það gengur bara fínt sko...fullt af twists and turns:)


Já ...svona er þetta...eg get ekki sett myndir inná bloggið né haft fallega stafi þannig þetta verður bara að duga ykkur....:)


KOMA svo...

-Inga

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 01:38:22 / Melkorka

omg

ohh fokk ., við erum svo ekki nógu mikið að standa okur , omg og ég sem hélt að við værum að kálast við værum svo úber töffi. skomm stelpur við verðum að taka okku á sko þetta bara er ekki að vikar okei?

æm át jú nó

loooots of lööööv -Melur Kjart

 

 

og annaþóra omg, spurnig um að fara að koma með um sig!!

Þúst aðeins of svalt blogg


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 17:26:51 / Inga

you know it

Heyyyyyyy!=) Hvað segiði þá ? Langt helgarfrí núna hálfnað og ég er búin að vera á fullu síðan það byrjaði…gaman…4real!:) Hvað er að frétta annars? Engan myndir komnar frá mallorca…? 0sssss og afmælið hjá Önnu Pönnu voru teknar einvherja myndir?=) mig langar að sjá fyrst að mér var EKKI boðið!;) hehe ..nónó! Annnnars…. mjög athyglisverður dagur að baki…ég fór á fyrstu ballet æfinguna mina=D jeijj…Og það er maður/gaur að kenna mér ..hann er mega töff gaur! Var í íslenska dansflokkinum í 11 ár og flutti svo til New York og var að koma heim….jibb hann er fokk ass liðugur og það er fyndið að sjá hann sveifla sér í gegnum tónlistina sem er by the way eitthvað sinfóní/old dæmi….maður verður alveg sýrður í hausnum og fer að hugsa já fröken lafði María…..oooo maría !!! oooooo PABLO;) Hehe varð að skjóta þesssu með! Ætliði að vera með spilakvöldið á fimmtudaginn..hmmm haaaa??=) Let me know… Annars ætlaði ég ekkert að segja neitt merkilegt nema hæj , þetta og bæ…? Farið þi ðsvo að blogga litlu -Inga

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 15:28:23 / Melkorka

:)

jæka þá ...þá er allt í gangi . en hjá ykkur krakkar ??


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 02:16:05 / Melkorka

gill í maga

Ónei maður eyðir ekki tíma í að vera í tölvu á mæjó. Ég er komin með sting í hjartað ég sakna þess svo mikið að vera þarna. Ohh. Ég sé líka pínu eftir að hafa ekki talað við pabba.:$

 En já við lögðum af stað snemma snemma 10 águst og komum í steikjandi blíðu. Biðum eftir rútu , uppá hótel hoppuðum í sólarvörnina og út á strönd. Ég er sjálf reyndar ekki mikið fyrir ströndina en ég lét mig hafa það í sokkum. Stelpurna busluðu mikið í sjónum , ég prófaði það aðeins , en endaði svo bara með því að ég sofnaði upp á strönd. Við skunduðum upp á hólel þegar okkur fannst vera komið nóg , hoppuðum í sturtu og allir saman út að borða. Þar byrjaði kjúlla æðið. Eftir að hafa nært okkur röltum við um stöndina prófuðum nokkra staði en enduðm á paradís, flest .

 Þetta var bara fyrsti dagurinn og það eru þrettán eftir og voru þeir allir mjög svipaðir, en þó mismunandi bragur á þeim. Það var vaknað uppúr hádegi oftast , ekki urðu sumir frekar pirraðir að missa af sólinni. Oftast var maður komin út í garð milli eitt og tvö, þar var legð til sex sjö , upp í sturtu , það tók mjög misjafnan tíma , út að borða og síðan djammað fram á rauða... flest kvöld var komið heim til sín , en sumum fanst gott að fá að kúra í annari íbúð ef einhver var hræddur um að hinir sem voru komnir heim svæfu of fast til þess að vakna til að opna.

Mjög oft lág leið okkar á bar að nafni Latinos. Ég fæ alveg gæsa húð við að hugsa um hann. Það var þannig þar að ef þú keypti einn kokteil fékkstu annan frían og ef það voru keyptir fjórir sama fék maður einn líter af t.d vodka lemon. Þar var mjög oft byrjað kvöldið og síðan haldið á diskó. Riu Palace var frekar svona uppahalds. Mörg ljós , herbergi með mismunandi tónlist og dansað eins og allir ættu lífið að leysa.  

Eitt kvöld fórum við á Magaluf , og þar fórum við á BCM sem er stærsta diskó í Evrópu. Þar lét ég plata mig inn á froðudisko þar sem ég var nærri dauða heldur en lífi. Ég , Jónas og Invar vorum að leita að hinum krökkunum , stöldruðum við og vildi svo óheppilega til að við stóðum beint undir þar sem froðan kom út , og það þurfti náttúrulega að froða á svona týndi óundirbúnar litlar dúllur. Allavega þá fékk maður þetta allt í andlitið og mægod hvað froðan er þykk. Það var nánast ómögulegt að ná henni úr andlitinu á manni , ég ráfaði þarna um hélt ég væri að deyja og eina sem komst að í huganum á mér var “NEI ég vill ekki deyja á diskói” een Jónas fann mig og á endanum fundum við hina , þannig að þetta var frekar fyndið. Og á þessu diskói gat maður líka fengið gas , og vá var það fyndið. 

Eins og flest kvöld þá komum við heim. En þetta kvöld var séstakt þar sem það var búið að snúa allri íbúinni okkar við. Arleif okma fyrst heim og hélt hún væri að koma inn í vitlausa íbúð. Nei þá voru strákarnir sem voru heima að vera fyndnir. Een við leyfðum þeim ekki að komast upp með það að gera eitthvað svona , þannig að daginn eftir fórum við í þeirra íbúð þegar þeir voru ekki við , snérum henni nánast á hvolf og hengdum klósett papír út um alla íbuð. En kunna strákar að taka gríni , nei þeir vældu og vældu , hvað héldu þeir , ef ég mundi lemja þig þá mundir þú lemja mig fastar. En þetta fór allt vel að lokum og allir voru vinir. 

Eitt kvöldið kom Arleif oftar en ekki fyrst heim , en lykill var ekki í lobbíinu . þá höfðum við verið að drífa okkur of mikið út til þess að bíða eftir þjónustu og Inga Margrét sýndi okkur listir sína með því að stinga lyklinumí vitlaust hólf . þegar ég kom heim sat Arleif ein í myrkrinu. Vala og Inga fóru svo niður og redduðu þessu með töfrum sínum.

Síðan kynntumst við Hollendigum .. en ég held að ákveðnar stöllur vilji ekki ræða svo mikið um þá , þannig að ég læt það kjurt. hehe

Þetta er svona það mesta sem kemur upp í hugan á mér núna , forum jú í Palama að versla tvisvar þrisvar sinnum . dönsuðum, sungum drukkum lágum elskuðm og nutum. Þetta toppaði svo margt. Kyntumst svo mörgum og prófuðum svo margt. Þetta er gull í kistuna mína. Ég keypti mér myndavél þannig að það gætu dottið inn nokkrar vel valdar , en ég lofa engu . 

Takk fyrir ferðina elsku dúllur , þetta var frábært . Vala , Inga M , Arnleif, , Inga Berg , Freyja , Eiki , Gummi , Bjarni, Gísli , Jónas , Ingavar og Sindri . Þið eruð öll dúllur og það ætti að ramma ykkur inn

 

 -ást Melkorka


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 11:14:17 / Karen

New York, New York

Jæja núna sit ég hérna í vinunni að hlusta á Arcade Fire með voða lítið að gera þannig ég ákvað að drepa tíman þanga til ég fer í mat með því að blogg smá....:)

En já ég er nýkomin heim frá New York þar sem ég var í viku að versla, skoða  og leika mér 8) sem var mjög gaman :lol: en já ég ætlaði bara að koma með smá ferðasögu hérna;)

Ég flaug út 2 ágúst og var lent í New York um hádegi, það var 38°C þegar við lentum, enginn vinudur og raki í loftinu sem er = ólíft fyrir mig, held að mér hafi bara sjaldan verið svona heitt :|

Við fórum svo í gegnum tollinn og það var tekið mynd af manni og líka tekið fingrafarið mitt, dáldið ströng öryggisgæsla þarna 8|. Eftir það tókum við taxa upp á hótel, komum okkur fyrir og fórum svo út að skoða og enduðum í búðum og fórum að versla :D og mér tókst að kaupa mér helvíti mikið.  Við fórum svo með allt dótið heim á hótel og fóurm svo út að borða.

Næsta dag eins og alla hina daga fórum við á morgunverðarstað og fengum okkur að borða, ég fékk mér annað hvort pönnukökur, beiglu, egg og beikon, ristað brauð, ommilettu eða ávaxtasalat ;) bara góður morgunmatur þarna úti :lol:

góðar pönnkökur :)

Við fórum líka alltaf út að borða á kvöldin sem er alls ekki eins dýrt og það hjómar, veitingastaðir eru frekar  ódýrir þarna úti.  En við prufuðum fullt af stöðum, fórum aldrei á þann sama.  Við prufuðum japanskan stað, indverskan, kínverskan, ítalskan, spænskan og svo fórum við lika auðvita á amrískan stað;) maturinn var misgóður á þessum stöðum en mér fannst Spænski maturinn lang bestur ;)

  

Við fórum svo eignlega alltaf út eftir morgunmatinn versluðum og versluðum við mikið. Við fórum oft upp í Soho að versla og svo fórum við líka aðeins upp á Manhattan og versluðum þar þótt það sé ögn dýrara:haha:  það er samt allt miklu ódýrara þarna úti heldur en hérna heima sérstaklega föt :) 

Við skoðuðum líka fullt við löbbuðm Time Square og öll jósinn þar sem er geðveikt flott :D þar var samt svo troðið af fólki að maður gat varla labbað þar og mikið af fólki að spila á hljóðfæri úti á götu og þannig, sáum meira að segja einn gaur sem var að labba um í Spider-man búning og var að rukka fólk 1 dal fyrir að láta taka mynd af sér með honum hehe...

Fræga Virgin Merkið á Time Square

Við fórum líka einn dag í Sentral Park og gengum þar um og skoðuðum einhvern hluta af garðinum, held að það myndi taka meira en einn dag að ganga hann er svo geðveikt STÓR8| þessi garður er samt mjög flottur og með nokkrum viltum dýrum í og sáum við t.d. íkorna sem er dúlur.  En já í Sentral Park skoðaði ég Strawberry Fields  þar sem minnisvarðin um John Lennon er :P

  Það er í rauninni bara svona stór hringur á jörðinni og inní honum stendur IMAGINE og það var einhver hippi þarna sem var að skreyta hringinn með blóum og allskonar dóti.

Linda og ég löbbuðum svo líka Brooklin Bridge sem er dáldið gömul brú, en vá það var svo heitt þegar við löbbuðum hana að mig langaði mjög, mjög mikið að henda mér í sjónn þegar við vorum að labba yfir hana 8| en maður lét sig þó hafa það því það er mjög flott að labba þarna yfir :lol:

 Dálið stór sko :o við löbbuðum samta varla helminginn og svo aftur til baka ;) þetta er svo langt

En ég gerði nú líka eitthvað annað heldur en að bara versla skoða mig um...við fórum á eina listasýningu þarna úti sem hét Boddies sem er frekar spes sýning en samt fannst mér hún geðveikt áhugaverð.  Við fórum líka á MoMA ( The Museum of Modern Art) sem var líka skemmtilegt, þar var ótrúlega mikið af frægum lista verkum t.d. eftir Picaso og marga fleiri fræga;)

Svo lenti ég samt í einu sem var geðveikt gaman, þannig var að ég og frænka mín ætluðum að fara í MoMa á þriðjudaginn en þá var það lokað þannig við löbbuðum til baka og þá sáum við allt í einu fullt af fólki á einu götuhorninu á 5th avenu og mikið af myndavélum. Við ákváðum þá að spurja einn mannin hvað væri á gangi og þá sagði hann:

Æjj við erum bara að fara að taka upp nýju myndina með Adam Sandler,honum fannst það greinilega ekkert merkilegt

Við spurðum þá hvort Adam væri komin en kallinn sagði að hann kæmi eftir klukkutíma þannig við biðuma þarna í smá stund og eftir svona tuttugu mín sáum við þá bara ekki Adam Sandler ganga þarna eftir götunni:o:) það var bara gaman;)

Eftir að hafa verslað flutt af fötum, iPod og tölvu, labbað upp og niður Manhattan í steikjandi hita og raka og  vera komin með blörður á tærnar  var loksins, loksins haldið heim. Við lentum á Íslandi á aðfranótt föstudagsins 10 og  þegar við lentum á Íslandi var rok og rigning sem var ég bara ánægð með það.  Svo þegar ég var á leiðinni í gegnum tollinn heyrði ég einhver kalla á mig og  þá var það Eydís  sem hafði verið í London, ég hafði ekki hugmynd um að hún væri úti :lol: fyndið að rekast svo á  hana í flugstöðinni;)

En já þetta var bara skemmtileg ferð í alla staði en samt er alltaf gott að koma heim...:haha:

En núna eru stelpurnar allar út á Mallorca að djamma, djús og liggja í sólbaði;) þær koma svo heim í næstu viku sólbrendar og þunnar :D hehe...Þóra sem er búin að vera að þvælast um alla Evrópu kemur heim í dag örugglega vel þreytt og ánægð  með sína ferð :D örugglega búin að sjá fullt og kynnast fullt af fólki...hún er lílka búin að vera dugleg að blogga um ferðina sína  á síðunni sinni blog.central.is/sjibbi ;)

Svo fer sumarið bara alveg að vera búið skólinn að byrja í næstu viku líka sem er kannski bara fínt:).....þetta sumar er nú samt búið að vera mjög skemmtilegt :) eitt af þeim skemmtilegri hingað til :haha: þótt maður hafi nú ekki farið á þjóðhátíð :whut:  maður fer bara á næstu;)

en þetta er orðið helvíti langt hjá mér þannig ég ætla bara að segja þetta gott....

                              Karen New York fari 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27
Klukkan
Nýtt

 

""

 

Könnun
Hress?


Leitarbox